Námskeið með Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur
Reynslunni ríkari
Fimmtudagur 14. janúar 2027 · kl. 19.30–22.00
Staðsetning verður tilkynnt síðar.
27.200 kr. til og með 30. nóvember 2026.
Fullt verð er 34.000 kr.
Um námskeiðið
Árið 2005 skrifaði ég um það hvernig maður setur stefnuna í eigin lífi og fjallaði m.a. um óskaspjöld og markmiðasetningu í bókinni Móti hækkandi sól. Nú vinn ég að nýrri bók um það hvernig við getum nýtt reynslu okkar til að móta framtíðina.
Langlífi hefur aukist og við njótum betri heilsu fram eftir aldri. Tækniframfarir hafa opnað möguleika sem fyrri kynslóðum stóð ekki til boða. Fyrir okkur blasir nýtt hlaðborð tækifæra til að læra, breyta til og gefa gömlum draumum pláss. Löng ævi bíður upp á að þú skipuleggir starfsferil þinn og líf þitt almennt öðruvísi. Farið verður vel yfir þá valmöguleika.
Hvað af því sem stendur þér til boða myndi helst bæta líf þitt?
Á námskeiðinu Reynslunni ríkari tengi ég rannsóknir á lífsgæðum við áratuga reynslu af stefnumótun og rannsóknum. Við skoðum meðal annars hvað borgar sig að sleppa og hverju á að halda í viðhorfum og hegðun fyrir líðan okkar þegar við þroskumst.
Nú er tími til að taka sig á og vera með í nýjustu tækni. Nýttu gervigreindina til að vinna minna og afkasta meiru.
Markmiðið er að þú farir heim með raunhæf markmið fyrir árið 2027 og stígir ákveðin fyrstu skrefin. Eftirfylgni felst í því að vinna að markmiðunum allt árið og fá endurgjöf.
Þú færð bækling með lestrar- og hlustunarefni til að vinna áfram með markmiðin þín.
„Þetta námskeið var hvatningin sem ég þurfti til að setja mig í réttar stellingar í upphafi árs og taka til í eigin ranni, setja mér ný markmið og njóta lífsins.“
Sigrún Ásdís, þátttakandi í janúar 2026
Leiðbeinandi
Árelía Eydís Guðmundsdóttir er rithöfundur og dósent við Viðskiptadeild Háskóla Íslands. Hún er höfundur bókanna Móti hækkandi sól og Sterkari í seinni hálfleik.
Skráning og greiðsla
Greiðsluupplýsingar eru sendar eftir skráningu. Þátttakendur hafa áður fengið hluta námskeiðsgjaldsins endurgreiddan hjá stéttarfélagi sínu.
Spurningar? Skrifaðu mér á areliaeydis@gmail.com.