Markmiðasetning eru mínar ær og kýr, ef svo má að orði komast. Ég hef gefið út bækur um efnið, kennt um það í fjöldamörg ár. Ekkert merkilegt við það í sjálfu sér en það sem mér finnst alltaf jafn skemmtilegt er að fylgjast með ryðmanum í markmiðasetningum. Markmiðasetning eru mínar ær og kýr, ef svoHalda áfram að lesa „Þekkir þú tilgang þinn?“
Category Archives: Pistlar
Húsbóndi á sínu heimili
Þegar ég fer í klippingu eða snyrtimeðferðir (ekki alveg ókeypis að líta svona út 😉 eins og vinkona mín ein segir alltaf). Þá nota ég tækifærið og les öll „kerlingatímaritin“. Eða réttara sagt kíki á þau. Þessi íslensku tímarit sem ætluð eru konum eru mismunandi að gæðum en eftir því sem ég verð eldri ogHalda áfram að lesa „Húsbóndi á sínu heimili“
Nýjar umferðareglur
„Þú matt þetta EKKI.!“ Aðstoðakonan mín, sem öllu jöfnu stjórnar mér nokkuð vel og vandlega horfði á mig með hneyslun. Ég leit undrandi upp úr tölvunni og kváði. Upphófst þá lesturinn, „sko af því að þú ert orðin einheyp þá mátt þú ekki senda karlmanni vinabeiðni á facebook!“ Ég varð enn meira hissa og fórHalda áfram að lesa „Nýjar umferðareglur“
Kvenorkan
Á alþjóðadegi kvenna hugsa ég hlýlega til allra kvenna í lífi mínu og líka hinna sem eru mér ekki sýnilegar. Konur vinna oft vinnu sem er ekki sýnileg en heldur samt sem áður öllu saman í samfélögum manna. Konur hugga og snýta og styðja fólk sem getur ekki stutt sig sjálft. Konur eru oft íHalda áfram að lesa „Kvenorkan“
„Dating after fifty for dummies“
Eins og lesendur mínir vita þá er hef ég ástríðu fyrir mið og „efri árunum“ eða lífsþroska okkar mannanna. Margt er svo spennandi að mínu mati að ég get ekki haldið mér saman þegar kemur að þessu efni (reyndar á ég í vandræðum með það svona almennt). „Vissir þú að heilinn heldur sama krafti ogHalda áfram að lesa „„Dating after fifty for dummies““
Á rauðu ljósi
Ég hentist út úr dyrunum, í dag, orðin allt of sein, átti vera með fyrirlestur eftir tíu mínútur. Ég setti bensíngjöfina í botn og fór á öðru dekkinu af stað. Af því að ég var svo stressuð þá gleymdi ég mér og fór í vitlausa átt og þurfti að fara í gegnum miðbæinn. Ef þiðHalda áfram að lesa „Á rauðu ljósi“
Að ferðast ein..
Maðurinn horfði hissa á mig, „en venjulega eru alltaf tveir saman!“. Ég var ein á ferðalagi og kom til að þvo af mér rykið í sundlaug staðarins. Hann hafði rukkað mig um rúmlega þúsund krónur sem mér þótti mikið en þegar ég leit á gjaldskránna eftir að hafa borgað honum sá ég að gjaldið varHalda áfram að lesa „Að ferðast ein..“
Má ekki bjóða þér uppfærslu?
Reglulega uppfærum við töluvkerfið okkar og símann og fleiri tæki. Stöðugar tækninýjungar valda því að ný og betri kerfi eru gerð. Það eru ekki bara tækin okkar sem þurfa uppfærslu því flugfélög bjóða reglulega uppfærslu, upp á næsta stig. Í vor var upplýsingakerfi okkar uppfært. Rétt áður en nýja kerfið var innleitt fór allt íHalda áfram að lesa „Má ekki bjóða þér uppfærslu?“
Þvarg og þvaður
„Skrifaðu nú um það..“, sagði frændi minn glaðhlakkandi yfir þeim upplýsingum sem hann hafði komið á framfæri við mig. Hann var komin með lausnina á skilnuðum landsmanna „ef þessar kerlingar hætta bara þessu þvargi og þvaðri þá verður heimurinn mun einfaldari og hjónabönd langlífari.“ Frændi minn þessi hefur svör á reiðum höndum við flestum lífsinsHalda áfram að lesa „Þvarg og þvaður“
Hetjur
Í enn eitt skiptið fáum við tækifæri til að kveðja það ár sem nú líður að lokum. Við horfum til baka og metum hvað tókst vel til og hvað mætti betur fara. Þetta ár var mér viðburðarríkt en það sem stóð upp úr var líklega „come-back“ Kristínar Gerðar systur minnar sem lést fyrir tæpum átjánHalda áfram að lesa „Hetjur“
Eru áhrifavaldar bara ungar fallegar konur með Gucci töskur?
Ég fór á skemmtilegan fyrirlestur um daginn hjá konu sem er í doktorsnámi í Hong Kong en efni rannsóknar hennar eru áhrifavaldar á samfélagsmiðlum. Ég fræddist heilmikið um hverjir eru þekktustu áhrifavaldar í heiminum. Það virðist vera sem flestir áhrifavaldar séu konur á aldrinum 18-23 ára og þær eru fallegar og mjóar og taka fagmannlegarHalda áfram að lesa „Eru áhrifavaldar bara ungar fallegar konur með Gucci töskur?“
Að mæta á bryggjuna.
Þegar pabbi minn var unglingur mætti hann niður á bryggju í Keflavík og fór í röð annarra sem biðu eftir því að vera valinn til að fá vinnu þann daginn. Hann var oftast valinn enda duglegur og sterkur strákur sem mokaði salti af kappi til að geta fengið greitt í reiðufé frá útgerðamanninum í vikulok.Halda áfram að lesa „Að mæta á bryggjuna.“
Sjö skref að góðri hauststemmingu í kó-víti.
Ég skipulagði u.þ.b. fjórtán ferðir erlendis á síðustu tveimur árum, fimmtán matarboð sem ekki voru haldin og innflutningspartý sem ekki varð af. Missti af böllum og skröllum (smá ýkjur, feels like it..). Hugsunin „þegar þetta verður búið..“, ég sá fyrir mér að sumarið 2021 yrði sannkölluð gleðiganga – en hún var heldur ekki haldin. ViðHalda áfram að lesa „Sjö skref að góðri hauststemmingu í kó-víti.“
Hvaða álfum munt þú bjóða heim um áramót?
Flestir eru tilbúnir til þess að kveðja árið 2020, sprengja það í loft upp, kasta á brennuna og horfa á það brenna inn í eilífðina. Íslenskar húsmæður til forna þrifu húsakynni sín á gamlársdag, kveiktu ljóstýru í hverju horni og hverjum glugga og fóru síðan þrisvar með þuluna Komi þeir sem koma vilja Veri þeirHalda áfram að lesa „Hvaða álfum munt þú bjóða heim um áramót?“
Mig langar í nýjan kjól…
Mig langar í nýjan kjól. Virkilega langar í nýjan kjól. Undanfarna daga hef ég gengið á milli búða og skoðað kjóla. Ég finn ekki þann sem er í huga mér og bíð mér ekki upp á að máta því þá er skaðinn skeður gagnvart buddunni. Ég vafra á netinu og skoða kjóla. Í morgun vaknaðiHalda áfram að lesa „Mig langar í nýjan kjól…“
Hvað má læra af því að dansa flamenco?
Ég brá mér til Spánar á haustmisseri þar sem ég dvaldi við skrif í hinni fögru Granada. Til þess að liðka mig og standa upp frá tölvunni skráði ég mig í tíma í flamenco dansi. Ég mætti í íþróttaskóm og hækkaði meðalaldur um alla vega þrjátíu ár. Senjorítan sem kenndi mér talaði enga ensku enHalda áfram að lesa „Hvað má læra af því að dansa flamenco?“
Stefnumót við sjálfa/n þig.
Þessir dagar milli jóla og nýárs eru uppáhaldsdagar mínir. Ég er ekki enn byrjuð í megrun og maula því konfektið án samviskubits. Jólabækur spænast upp en ég á enn eftir eina eða tvær en mikilvægast er þó stefnumótið sem ég á við sjálfa mig og uppgjörið við árið. Þetta var árið þar sem við ætluðumHalda áfram að lesa „Stefnumót við sjálfa/n þig.“
Babúskur
Ég á fallega Babúsku, sem eru tréstyttur sem raðast hver inn í aðra, frá því að ég fór til Moskvu fyrir löngu síðan. Í mínum huga sýna þær snilldarlega þá staðreynd að við höfum öll margar hliðar sem okkur ber að nýta og láta njóta sín. Þekktar starfsferil kenningar ganga út á hin mörgu sjálf. Þegar viðHalda áfram að lesa „Babúskur“