
Líf okkar hefur takt sem við fylgjum oft án þess að gefa því gaum.
Að þekkja taktinn sinn getur opnað fólki margar dyr og fyrir suma felst í því viss áskorun í seinni hálfleik að finna taktinn sinn að nýju. Á námskeiðinu Seinni hálfleikur II: Blásið í glæður nýrra drauma lærir þú að finna þann takt sem þú vilt dansa.
Nánari upplýsingar
Markmiðið er að þátttakendur dýpki skilning sinn á því háttalagi og hugarfari sem eykur líkur á að verða ánægðari eftir því sem árunum fjölgar.
Þetta námskeið er hannað til að hjálpa þér að fjarlægja hindranir og sleppa tökunum á því sem ekki þjónar þér lengur, endurnýja kraft og hugrekki til að blása í glæður gamalla drauma til að láta þá rætast og finna nýja til að leysa hæfileika þína úr læðingi. Þú endurnærir þig, endurhannar áhugamál þín og finnur út úr því hvað þú vilt gera næst á lífsleiðinni til að fullnægja þér.
Á námskeiðinu undirbýrð þú þig til að hrista upp í munstrum til að blómstra.
Efnistök:
- Hvernig á að fjárfesta í nánum tengslum.
- Hvernig sigla má í gegnum breytingar.
- Hverjar eru helstu innri hindranirnar.
- Hvernig ná má dýpri tengingu við tilgang lífs þíns.
- Hvernig uppgötva má nýjan flöt á seinni hálfleik lífs þíns.
- Hvernig rækta má sterkari tengingu við innri takt þinn.
- Hvernig endurheimta má leik, skemmtun, forvitni og sköpun sem sterkustu öfl í lífi þínu.
Á námskeiðinu lærum við um ,,árangursfíkn“ og hvernig við getum tekið ákvarðanir út frá okkar eigin þörfum en ekki kröfum um endalausan árangur.
Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir hefur starfað sem háskólakennari, rithöfundur, ráðgjafi og nú síðast sem borgarfulltrúi undanfarin ár. Eftir hana hafa komið út fjölmargar bækur, fræðilegar greinar og greinar og umfjöllun í fjölmiðlum. Bókin: Sterkari í seinni hálfleik. Verður höfð til hliðsjónar en það efni sem hér er sett fram en stór hluti af því er þó nýtt
Þyrftum að vera jafn undirbúin og við erum sem unglingar á kynþroskaskeiði
„Ég trúi því að heppni sé þar sem undirbúningur og tækifæri mætast. Til þess að undirbúa sig sem mest og best fyrir lífsins ævintýri er mikilvægt að setja stefnuna reglulega.“
Námskeiðið fer fram laugardaginn 20. Janúar og stendur frá 9-13 á höfuðborgarsvæðinu.
Kostnaður er: 19.000, innifalið er námskeiðsgögn, kaffi og meðlæti.
Skráning hér: https://docs.google.com/forms/d/1FyuDIel6gcg3-A8G8h-x7cDd35tI6Yk9e9N_lqM6f1g/

Leiðbeinandi
Leiðbeinandi er dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir
You must be logged in to post a comment.