Að pakka rétt fyrir ferðalagið.

Ég fór í ferðalag fyrir nokkrum árum þar sem ég notaði u.þ.b. helminginn af þeim fatnaði sem ég pakkaði. Ég burðaðist sveitt með töskuna á milli staða og bölvaði mér í huganum fyrir vitleysuna. Auðvitað var ekki hægt að kaupa nokkurn skapaðan hlut því taskan var svo full.

Ég lærði mína lexíu. Núna ferðast ég oftast einungis með handfarangurstösku og skipulegg innhald töskunnar eins og flugmaður sem fer yfir kladdann fyrir flug. Ég hugsa mjög vel um hvað ég þarf að nota og hvenær. Skil alltaf eftir smávægilegt rými fyrir hið óvænta. Oft „verð“ ég að taka heim með mér akkúrat réttu gjöfina eða kjólinn og þá er pláss. Þetta krefst aga. Ég set þau föt í bunka sem ég ætla að hafa með og síðan fer strangt eftirlit af stað. Þarf ég nauðsynlega á þessari flík að halda? Ef hún stenst skoðun fer hún í töskuna en ef ekki, aftur í skápinn. Hver flík fer í gegnum gæðaskoðun. Skart, skór og fylgihlutir sömuleiðis. Ferðalögin hafa orðið mun auðveldari og ánægjulegri eftir þetta.

Lífið er ferðalag. Það má segja að við þurfum að huga vel að því hverju við pökkum í því ferðalagi. Stundum ferðumst við með auka farangur sem gerir ferðalagið óþarflega erfitt. Reglulega er því nauðsynlegt að fara í gegnum stífan tékk-lista. Þarf ég á þessum vana að halda áfram? Þjónar þetta viðhorf mér inn í framtíðina? Mun þessi daglegi taktur nýtast mér á komandi tíð? Geri ég ráð fyrir hinu óvænta? Er eitthvað af því sem ég hef tekið með mér hingað til orðið algjörlega óþarft? Hvaða hindranir þarf ég að ryðja úr vegi svo ferðalagið verði sem skemmtilegast?

Það er svo gott að vera akkúrat með það sem maður þarf. Hvorki of mikið né of lítið. Þróa sig áfram með nákvæmlega það sem maður kemst af með og getur ekki verið án á áfangastað.