Margt býr í þokunni.

Undanfarið ár hefur liðið hratt, verið viðburðaríkt og nú þegar líður að lokum ársins 2026 eru blikur á lofti á vinnumarkaði. Margir eru að ganga inn í þoku eða komnir þangað. Þoka getur skollið á fyrirvaralaust en stundum má sjá hana læðast að. Starfshættir eru að breytast, hlutverk taka enda og mörg fyrirtæki eru í efnahagslegum ólgusjó.

Ég hef verið að leita í sjóði, bæði gamalla og nýrra breytingastjórnunar höfunda sem lýsa oft því ástandi sem einkennir þoku á vinnumarkaði. William Bridges fjallaði um bilið milli þess sem lýkur og þess sem tekur við. Bók hans er orðin gömul en sannindin sem felast í að stýra hinni erfiðu umbreytingu sem best á enn við. Þeir sem hafa skrifað á undanförnum árum beina athyglinni að því hvernig við tökumst á við breytingar hvert og eitt. Kotter leggur áherslu á að fólk sjái tilgang og tækifæri í því sem fram undan er. Dan Heath minnir á að við þurfum að gefa breytingum pláss í daglegu lífi. Stulberg fjallar um að halda fast í það sem skiptir okkur máli en vera tilbúin að fara nýjar leiðir. Damon Centola sýnir hversu miklu stuðningur fólksins í kringum okkur skiptir og Richard Gerver dregur fram gildi forvitni og lærdóms. Mér finnst þessi sjónarhorn eiga brýnt erindi við okkur núna. Við viljum gjarnan sjá leiðina alla áður en við leggjum af stað, en fáum sjaldnast þann munað. Stundum þurfum við að ganga inn í þokuna, taka eitt ígrundað skref og sjá hvað verður sýnilegt þaðan. Reynslan kemur þá að góðum notum, svo lengi sem við erum líka tilbúin að læra eitthvað nýtt. Þegar maður lendir í þoku er fyrsta viðbragð að stoppa eða hægja mjög á sér. Reyna að vera sýnilegur og bíða. Jim Collins sem varð þekktur af bókinni „Good to Great“ fjallar í nýrri bók sinni, What to Make of a Life, um tímamótin þegar lífið eins og við þekktum það breytist og við þurfum að finna okkur nýja stefnu. Hann og hans teymi skoðuðu ótal ævisagna og komu upp með greiningu á hvað einkennir líf fólks sem hefur náð árangri. Collins kemur upp með líkinguna við þokuna sem allir, að hans mati, lenda í. Hann notar þokuna sem líkingu fyrir tímabilið þegar gamla leiðin er horfin en sú nýja hefur ekki enn komið í ljós. Þá reynir á sjálfsþekkinguna. Mikilvægt sé að fólk spyrji sig: Hvað skiptir mig máli, hvar nýtast hæfileikar mínir og hvað kveikir enn áhuga minn? Við getum haft mikla reynslu og samt verið óviss. Jim Collins fjallar í nýrri bók sinni, What to Make of a Life, um tímamótin þegar lífið eins og við þekktum það breytist og við þurfum að finna okkur nýja stefnu. Hann notar þokuna sem líkingu fyrir tímabilið þegar gamla leiðin er horfin en sú nýja hefur ekki enn komið í ljós. Þá reynir á sjálfsþekkinguna: Hvað skiptir mig máli, hvar nýtast hæfileikar mínir og hvað kveikir enn áhuga minn? Mér finnst þetta gagnlegt sjónarhorn á umbreytingatímabil. Við getum haft mikla reynslu og samt verið óviss. Reynslan getur hjálpað okkur að velja næsta skref, þótt hún segi okkur ekki nákvæmlega hvert leiðin liggur. Kannski þurfum við stundum að gefa okkur leyfi til að vera í þokunni um stund og leyfa framtíðinni að taka á sig mynd á meðan við göngum.

Þetta á líka við um forystu. Stjórnendur þurfa að geta sagt: „Ég veit það ekki enn,“ og samt tekið ábyrgð á næsta skrefi. Skapað svigrúm til að kanna nýjar leiðir og endurskoða ákvarðanir þegar meira kemur í ljós.